Tuesday, July 29, 2014

Íslenskt sumar

Það hefur ekki mikið farið fyrir góða veðrinu hérna á suðvestur hluta landsins og má með sanni segja að það hafi verið týbískt íslenskt sumar með roki og rigningu ;)  Það rofaði að hluta til í tvo daga um miðjan júlí og þá hentist ég i leikskólann um hádegi og náði snemma í leikskólastelpuna mína til að nota veðrið....og sem betur fer þar sem það var farið að rigna daginn eftir.

Tók myndirnar á yndislegum stað, í einkagarði við hliðina á æskuheimili mínu.  Sóleyjar, engi og skógur.....hvað getur maður beðið um meira :)






A photo session with all these beautiful buttercups one day in July when it stopped raining for tvo days ;)

Kristín Vald

Monday, July 7, 2014

Rabarbari

Sumarið hingað til hefur ekki verið mjög myndavænt, endalaus rigning og leiðindaveður og þegar það hefur stytt smá upp þá hef ég alltaf verið upptekin !  En ég held enn í vonina :)

Tókum upp rabarbara í gær og tókum nokkrar myndir í leiðinni og gerðum svo gómsætt rabarbarapæ um kvöldið.  Slóum 3 flugur í einu höggi :)




I´ve not taken many pictures this summer :(  The summer here in Iceland has been very wet and windy !  But we harvested some rhubarb yesterday and I took some pictures....and made a rhubarbpie last night :)

Kristín Vald